
Símtöl
Hringt er úr farsímanum á venjulegan
hátt þegar höfuðtólið er tengt við
hann.
Til að hringja aftur í númerið sem
síðast var hringt í (ef farsíminn styður
þennan möguleika með höfuðtóli),
þegar ekkert símtal er í gangi, er ýtt
tvisvar á valtakkann þegar höfuðtólið
er hvorki í klemmunni né bílvöggunni.
Til að gera raddhringingu virka (ef
farsíminn styður þennan möguleika
með höfuðtóli), þegar ekkert símtal er
í gangi, er valtakkanum haldið inni
í u.þ.b. 2 sekúndur þegar höfuðtólið
er hvorki í klemmunni né vöggunni.
Farðu eftir leiðbeiningunum
í notendahandbók farsímans.
Taktu höfuðtólið úr klemmunni eða
bílvöggunni þegar þú svarar í símann.
Ýttu á valtakkann ef höfuðtólið er
hvorki í klemmunni né vöggunni.
Símtali er hafnað með því að ýta
tvisvar á valtakkann eða setja
höfuðtólið í klemmuna eða vögguna.
Símtali er slitið með því að setja
höfuðtólið í klemmuna eða vögguna,
eða ýta á valtakkann þegar höfuðtólið
er hvorki í klemmunni eða vöggunni.
Til að flytja símtal úr höfuðtólinu yfir
í samhæft tengt tæki er valtakkanum
haldið niðri í u.þ.b. 2 sekúndur.

ÍSLENSKA