Nokia Mono Bluetooth Headset BH 217 - Meðferð tækisins

background image

Meðferð tækisins

Fara skal gætilega með tækið,
hleðslutækið og fylgihlutina. Eftirfarandi
leiðbeiningar hjálpa til við að halda
tækinu í ábyrgð.

• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki

og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið
blotnar skal leyfa því að þorna alveg.

background image

ÍSLENSKA

• Ekki skal nota tækið á rykugum og

óhreinum stöðum né geyma það þar.
Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar
þess geta skemmst.

• Ekki skal geyma tækið þar sem

hitastig er hátt. Hátt hitastig getur
dregið úr endingu tækisins, skemmt
rafhlöðuna og undið eða brætt
plastefni.

• Ekki skal geyma tækið á köldum stað.

Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu
hitastigi getur raki myndast innan í
því og hann getur skemmt rafrásirnar.

• Ekki skal reyna að opna tækið.

• Tækinu skal ekki henda, ekki skal

banka í það eða hrista það. Óvarleg
meðferð getur skemmt innri
rafrásaspjöld og annan búnað.

• Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og

þurran klút til að hreinsa yfirborð
tækisins.

• Ekki skal mála tækið. Málningin getur

fest hreyfanlega hluti tækisins og
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum rafbúnaði,
rafhlöðum og umbúðum á sérstaka
söfnunarstaði. Með því stuðlar þú að
takmarkaðri losun á úrgangi og
endurvinnslu. Fáðu upplýsingar um
hvernig hægt er að endurvinna vörur
þínar á www.nokia.com/werecycle, eða
í farsíma á www.nokia.mobi/werecycle.

Merkið sem sýnir yfirstrikaða
ruslafötu og er á vörunni,
rafhlöðunni, bæklingnum eða
umbúðunum táknar að fara
verður með allan rafbúnað og

rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma
á sérstaka staði til förgunar að líftíma
vörunnar liðnum. Þessi krafa á við
innan Evrópusambandsins.
Hendið þessum vörum ekki með
heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar
um umhverfiseiginleika tækisins eru
á www.nokia.com/ecodeclaration.