Nokia Mono Bluetooth Headset BH 217 - Höfuðtólið parað og tengt

background image

Höfuðtólið parað og tengt

Para þarf og tengja höfuðtólið við
samhæft tæki áður en hægt er að
nota það.

Hægt er að para höfuðtólið við allt að
átta tæki en aðeins er hægt að tengja
það við tvö tæki samtímis.

Höfuðtólið parað og tengt við tæki:

1. Gakktu úr skugga um að kveikt

sé á tækinu og að slökkt sé
á höfuðtólinu.

2. Kveiktu á höfuðtólinu til að para

það við tæki ef það hefur ekki
verið parað áður. Höfuðtólið
fer í pörunarhaminn og bláa
stöðuljósið fer að blikkar hratt.

Hafi höfuðtólið áður verið parað

við tæki skaltu ganga úr skugga um
að slökkt sé á höfuðtólinu og það

sé hvorki í klemmunni né vöggunni,
haltu svo valtakkanum inni í u.þ.b.
5 sekúndur þar til bláa stöðuljósið
byrjar að blikka hratt.

3. Kveiktu á Bluetooth í tækinu eftir

u.þ.b. þrjár mínútur og láttu það
leita að Bluetooth-tækjum. Nánari
upplýsingar er að finna í
notendahandbók farsímans.

4. Veldu höfuðtólið af listanum yfir

þau tæki sem fundust.

5. Ef þörf krefur, sláðu þá inn

aðgangskóðann 0000 til að para
og tengja höfuðtólið við tækið.

Í sumum tækjum gæti þurft að

koma á tengingunni að pörun
lokinni.

Þegar höfuðtólið er tengt við tæki
og er tilbúið til notkunar blikkar
stöðuljósið rólega í bláum lit.

Til að tengja höfuðtólið handvirkt við
tækið sem síðast var notað skaltu
halda valtakkanum inni í u.þ.b.

background image

ÍSLENSKA

2 sekúndur (þegar ekkert annað tæki
er tengt) eða koma tengingunni
á í Bluetooth-valmynd tækisins.

Hugsanlega er hægt að stilla tækið
þannig að höfuðtólið tengist því

sjálfkrafa. Í Nokia-tækjum er þessi
möguleiki virkjaður með því að
breyta stillingum fyrir pöruð tæki
í Bluetooth-valmyndinni.