Nokia Mono Bluetooth Headset BH 217 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Þetta tæki er með innbyggða, fasta,
endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að
fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar sem
það getur skemmt tækið. Tækið er ætlað
til notkunar þegar það er hlaðið með
eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-4,
AC-5, AC-8, DC-4 og DC-9. Númer
hleðslutækisins getur verið mismunandi
eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar
er auðkennd af einu af eftirfarandi: E, X,
AR, U, A, C, K eða B. Hægt er að hlaða og

afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum
en að því kemur að hún gengur úr sér.

Tal- og biðtími er aðeins til viðmiðunar.
Raunverulegur tími er breytilegur og fer
t.d. eftir stillingum tækisins, aðgerðum
sem notaðar eru, ástandi rafhlöðunnar
og hitastigi.

Hafi rafhlaðan ekki verið notuð í langan
tíma, kann að vera nauðsynlegt að tengja
hleðslutækið, aftengja það síðan og
tengja það aftur til að hefja hleðsluna.

background image

ÍSLENSKA

Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið
nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum.

Þegar hleðslutækið er ekki í notkun skal
taka það úr sambandi við
rafmagnsinnstungu og tækið. Ekki má
hafa fullhlaðna rafhlöðu í sambandi við
hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt
líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar
hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki
í notkun.

Rafhlaðan skal ávallt höfð í hita á bilinu
frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of
mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og
líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða
kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa
tímabundið.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem
þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum
samkvæmt reglum á hverjum stað. Skila
skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt
er. Ekki skal fleygja þeim með
heimilisúrgangi.

Aðeins skal nota hleðslutækið til þess
sem það er ætlað. Röng notkun eða
notkun ósamþykktra hleðslutækja getur
valdið eldhættu eða sprengingu eða haft
aðra áhættu í för með sér, og orðið til
þess að öll ábyrgð og samþykki falli úr
gildi. Ef þú telur að rafhlaðan hafi
skemmst skaltu fara með hana til
þjónustuvers til skoðunar áður en þú
heldur áfram að nota hana. Aldrei skal
nota skemmt hleðslutæki. Aðeins skal
nota hleðslutækið innandyra.